sunnudagur, 16. nóvember 2014

Bakkaborð!

Þetta borð fann ég hjá Hjálpræðishernum einhvern tímann í haust og langaði að gera eitthvað úr því. Þriggja-fóta-borð eru eitthvað voða í tísku núna.


Ég tók fæturna af og bæsaði þá dökka og málaði plötuna hvíta.


Ég var bara nokkuð sátt við þetta! Betri helmingurinn getur hins vegar verið ansi snobbaður og hefur alveg sínar skoðanir á húsgagnamálum hérna á heimilinu - honum fannst þetta forljótt. Við erum yfirleitt sammála en ekki í þetta sinn, svo ég varð að leggja höfuðið aðeins í bleyti.

Var búin að sjá bakkaborð hér og þar á netinu svo ég fór að leita að einhverjum hentugum bakka. Fann þennan fyrir rest í IKEA: 


"Skala" bakki úr IKEA

Mæla út og skrúfa festingarnar á
Það þarf bara að passa að mæla þykktina á plötunni og lengdina á skrúfunum svo maður fari nú ekki í gegn! Við redduðum þessu nú bara með nokkrum skinnum á milli. 


Passar nú ekki beint að vera með plötu úr birki og dökka fætur svo ég málaði fæturna hvíta. 


Þetta er aðeins betra og kallinn sáttur! En ég sé það að ég er greinilega alltaf að færa smáhlutina til hérna heima... alltaf að breyta :)

sunnudagur, 12. október 2014

Spegill spegill...

Það er ekkert mál að breyta ljótum beykispegli í nokkuð sætan...

Fyrir
Það þarf bara að rífa spegilglerið úr rammanum og klína smá límbandi á hann!

Eftir

Sjæní dæmond
Límbandið fékk ég í Söstrene Grene.

sunnudagur, 5. október 2014

Enn fleiri stólar...

Ég keypti fjóra stóla á bland í sumar til að gera upp.

Tvo svona...
...og tvo svona
Tveir voru með illa rifnu næntís áklæði og tveir með svörtu pleðri sem var rifið hér og þar.
Þetta er sama hönnunin þó að tveir væru dekkri og bakið skrúfað á að utanverðu.

Þá er bara að hefjast handa við að rífa af (skrúfjárn og töng notað í það)
Grindin
Grindin var þrifin vel, pússuð með stálull og svo bar ég mæjones á viðinn. Stálullin er snilld til að ná gamallri málningu eða öðrum slettum af (hún er svo fín að hún "pólerar" bara, pússar ekki).
Áklæðið sem ég valdi
Efnið fékk ég nú bara í rúmfó á 2000 kall meterinn.

Heftað á og klippt meðfram
Ég hef aldrei bólstað stólbak áður, svo það var pínu áskorun. Ég tók af gömlu og skoðaði hvernig það hafði verið gert og sníðaði nokkurn veginn eftir því. Þar sem festingin kemur alltaf til með að sjást er t.d. hægt að kaupa bólstrunarnagla eða húsgagnabólur, en þær eru mjög dýrar. Ég þurfti ca 200 á fjóra stóla svo það hefði orðið frekar dýrt.

Efri parturinn heftaður á
Brett upp og lokað
Ég keypti einfaldlega 10 mm svarta nagla til að festa með. Það kom ágætlega út, þeir sjást varla.


Bakið
Tveir stólar tilbúnir!


Ég á svo tvo eftir, en það kemur í hlut eiginmannsins að bora festingarnar í bakið svo ég geti klárað þá...

mánudagur, 1. september 2014

Kollur

Ég rakst á þennan koll (eða borð) í Góða Hirðinum um daginn og keypti hann í algjöru flýti. Ég vissi í raun ekkert hvað ég átti að gera við þetta - sá bara einhvern möguleika á að gera eitthvað úr þessu.

Hvað er þetta?
Ég ætlaði að spreya plötuna einhvern veginn á litinn, en fékk svo aðra hugmynd. Í næstu Ikea-ferð keypti ég því hvíta gervi-gæru. Fæturnir voru bæsaðir með brúnu bæsi og lakkaðir.

Verið að sníða
Gæran fest með fótunum

Endarnir sitt hvoru megin voru svo saumaðir fast
Mín útgáfa af fuzzy ;)

Huggulegt...

fimmtudagur, 28. ágúst 2014

Kommóða

Þegar ég skrapp á Akureyri um daginn þræddi ég auðvitað alla nytjamarkaði í bænum í leit að gersemum. Frænkur mínar voru búnar að segja mér frá nytjagámi á gámasvæðinu í bænum og ég varð auðvitað að skoða hann - og fann þá gamla tekk kommóðu! Hún var ansi vel lifuð og illa farin (enda ástæða fyrir því að hún var komin á haugana!). Ég opnaði efstu skúffuna og þar leyndust fætur á hana.


Fyrir
Hún var spónlögð eins og mörg húsgögn í þessum stíl, en það gerir ekkert til. Það þarf bara að passa að pússa ekki mjög djúpt eða fara ofan í spóninn á köntunum.


Búið að pússa
Hún fékk nánast sömu meðferð og stólarnir: Pússuð með nr. 80 - tekkolía - pússuð með nr. 180 - majónes og svo pússuð aðeins eftirá með nr. 600.


Tilbúin!
Tókst mjög vel og ég er súperánægð með árangurinn af haugamatnum mínum :)

Tekur sig vel út
Nú þarf ég bara að fara að vinna í þessum spegli... eitt leiðir að öðru :)

Borðstofustólar!

Erfiðasta verkefnið mitt hingað til!

Mig vantaði fallega stóla við nýja borðstofuborðið, svo gömlu fengu að fjúka (seldir á bland) og ég fann fjóra klassíska tekkstóla á "Antík-sölusíðu" á Facebook.

Fyrir
Stólarnir voru grófir, vel lakkaðir og með gamaldags fallegu rósaáklæði.


Áferðin fyrir
Ég varð að taka einn í einu og pússa þá úti á svölum. Það var sjúklega mikil vinna í yfir 20 stiga hita í sumarfríinu mínu :)


Pússaður
Svenni mágur lánaði mér lítinn juðara sem er algjört þarfaþing í svona verkefni. Ég byrjaði að pússa þá með sandpappír nr. 80 sem er frekar grófur. 

Lifesaver
Þetta tók þónokkra daga...


Búið að fara eina umferð yfir alla
Ég reyndi að pússa eins vel ofan í viðinn og ég gat (þegar ég var komin undir lakkið) svo litamismunurinn yrði ekki of mikill. Gott er að þurrka sagið af með þurrum klút. Næst bar ég tekk- og palisander viðarolíu á - leyfði henni að þorna - og pússaði þá yfir með sandpappír nr. 180. Ég fór svo aðra umferð með viðarolíunni - leyfði henni að þorna - og pússaði þá með vatns-sandpappír nr. 600. Þurrka með klút á milli, þá fyllir sagið vel upp í allar rispur. Eftir það verður viðurinn rennisléttur og þá bar ég auðvitað majónesið góða á!


Sessur fyrir - heftin plokkuð upp með skrúfjárni og töng
Þá var það bólstrun... Ég var mikið búin að spá í hvernig áklæði ég ætti að setja á, fyrir var það rósótt (mjög fallegt) sem passaði bara engan veginn inn heima hjá okkur. Ég ákvað því að setja svart leðurlíki. Sæja tengdamamma og þúsundþjalasmiður leiddi mig í gegnum fyrstu tvær sessurnar og kenndi mér handtökin (og lánaði mér heftibyssu og hefti). Hún átti meira að segja ekta svart skinn frá Gestastofu sútarans á Sauðárkróki sem dugði á tvær sessur.


Ein komin
Passa þarf bara að strekkja vel og vanda sig í hornunum, þá er þetta lítið mál og bara nokkuð skemmtilegt.


Voila!
Tilbúinn!
Ég varð að redda mér áklæði og hina tvo og endaði á að kaupa leðurlíki hjá Godda í Kópavogi til að byrja með (skipti kannski í ekta seinna). Það sem ég keypti var frekar þunnt, mjúkt, teygjanlegt og meðfærilegt.

Leðurlíkið


Aðeins fallegra :)
Þetta hafðist!


föstudagur, 22. ágúst 2014

Stofuborð

Ég fann gamalt borð á bland í vor sem stóð til að breyta!

Borð

Það var með mjög fallegum blómaflísum sem voru því miður margar brotnar...
Það var of hátt til að vera stofuborð svo Atli vinur okkar og ofursmiður stytti það í rétta hæð fyrst. Með því fauk hins vegar flottu málmendarnir...
 
  
Búin að mölva og djöflast með hamri og sporjárni
Pússa og þrífa...
Ég bar á þetta borð tekk- og palisander viðarolíu til að dekkja aðeins.

Búið að bera á
Við þræddum margar búðir til að finna hinar réttu flísar, en fundum ekkert sem passaði eða sem okkur langaði í (nema maður er til í að borga 20.000 m2....). Enduðum því á möttum hvítum flísum en mig langaði í koparflísar.
 
...svo Frikki græjaði að sjálfsögðu koparflísar fyrir konuna :)
Notuðum hamrað málmsprey sem fæst í flestum byggingarvöruverslunum.

Kom vel út!
Ég setti svo svartan gluggaþéttikant þar sem flísarnar pössuðu ekki alveg fullkomlega. Það varð a.m.k. bráðabirgðalausn.

Eins og nýtt!